Konstitucija islandų kalba
Užupio Respublikos Konstitucija islandų kalba
Stjórnarskrá
- Allir eiga rétt á að búa við ána Vilnelé og áin Vilnelé á rétt á að streyma hjá
- Allir eiga rétt á heitu vatni, hlýjum húsakynnum að vetri til og þaki yfir höfuðið
- Allir eiga rétt á að deyja, en það er ekki skylda
- Öllum er heimilt að verða á mistök
- Allir eiga rétt á að vera öðru vísi
- Allir eiga rétt á að elska
- Allir eiga rétt á að vera ekki elskaðir, en ekki endilega
- Allir eiga rétt á að vera hvorki eftirtektarverðir – né alræmdir
- Allir eiga rétt á að vera latir og nenna engu
- Allir eiga rétt á að elska kisu og annast hana
- Allir eiga rétt á að annast hundinn sinn uns dauðinn þá aðskilur
- Hundur á rétt á að vera hundur
- Ketti er ekki skylt að elska eiganda sinn, en ber að leggja honum lið á neyðarstund
- Allir mega varpa af sér oki ábyrgðarinnar - endrum og eins
- Allir eiga rétt á að efast, en það er engum skylt
- Allir eiga rétt á að vera hamingjusamir
- Allir eiga rétt á að vera óhamingjusamir
- Allir eiga rétt á að þegja
- Allir eiga rétt á að trúa
- Enginn á rétt á að beita valdi
- Allir eiga rétt á að játa vanmátt sinn
- Enginn er eilífur
- Allir eiga rétt á að leita skilnings
- Allir eiga rétt á að skilja ekkert
- Allir eiga rétt á að vera af hvaða þjóðerni sem er
- Allir eiga rétt á að halda upp á afmæli sitt eða ekki
- Allir eiga að geta sagt til nafns
- Allir mega deila því sem þeir eiga
- Enginn má deila því sem hann ekki á
- Allir eiga rétt á að eiga bræður, systur og foreldra
- Allir eiga rétt á að vera óháðir
- Allir bera ábyrgð á eigin frelsi
- Allir eiga rétt á að gráta
- Allir eiga rétt á að vera misskildir
- Enginn má skella skuld á annan
- Allir eiga rétt á að vera sjálfs sín herrar
- Allir eiga rétt á að hafa ekki rétt fyrir sér
- Allir eiga rétt á að lifa án ótta
- Lát ekki kné fylgja kviði
- Bjóddu hinn vangann
- Gefumst aldrei upp